Solid Gear Vapor 3 GTX High

SN-SG80015
S7S

69.600 kr.

  • Tvöfaldir TPU teinar gefa stöðugleika og góðan stuðning
  • Vibram® Traction lug vetrar gúmmísóli
  • Hágæða ETPU miðsóli sem helst mjúkur við kaldara hitastig
  • GORE-TEX® vetrarfóðring og himna
  • BOA® Fit kerfi

Snickers stærðartafla

Snickers stærðartafla

Þvottaleiðbeiningar
  • Ekki þvo
  • Bleikið ekki
  • Ekki setja í þurrkara
Efni

Yfirborð: LWG nubuck leður og textílefni. Fóðring: GORE-TEX® ull og pólýester. Himna: GORE-TEX®. Ytri Sóli: Olíu- og hálkuvarið Vibram® gúmmí, fínstillt fyrir vetraraðstæður. Miðsóli: ETPU. Innlegg: PU frauð sem andar vel og er aðallega framleitt úr endurunnum efnum.

Öryggisstaðlar
  • EN ISO 20345:2022
    • S7S, SR, HRO, FO, CI
  • S7S
    • Öryggistá (200J / 15000N).
      Umlukinn hæll.
      Andrafstöðueiginleikar.
      Svæði í kring um hæl sem getur gleypt orku (prófun í 20 Júlum).
      Vatnssmygni og ísog.
      Vatnsheldni.
      Grófur sóli.
      Órjúfanlegur ytri sóli (án málma, prófun með 3.0 mm nagla).
      Hálkuvörn á gólfum með keramikflísum, með NaLS.
  • Snúningsreimar
  • Hitaþolnir
  • Vörn án málma
  • Naglavörn
  • Olíuþolnir
  • Öryggistá
  • Vatnshelt yfirborð
  • Vetrarfóðring
Tækni

Reimar: BOA® Fit Kerfi. Vörn: Öryggistá úr glertrefjum og mjúk naglavörn.

Reimar: BOA® Fit Kerfi. Vörn: Öryggistá úr glertrefjum og mjúk naglavörn.


  • BOA® Fit snúningsreimarnar eru sérstaklega hannaðar til að hámarka afköst. Þær samanstanda af þremur óaðskiljanlegum hlutum: örstillanleg skífa, sérlega sterk og létt reim, og núningslítil spor sem beina reimunum. BOA® Fit kerfið er sérhannað fyrir hvern skó og tryggir þannig hratt, áreynslulaust og nákvæmt snið. Það er BOA® ábyrgðin.

  • Vibram® er afburðasterkur og endingarmikill gúmmísóli hannaður til að veita sérlega gott grip á ójöfnum yfirborðum. Sólinn er einnig hitaþolinn og getur þolað hita að 300°C/572°F.

  • Endurkast ETPU miðsólans er afleiðing umbreytingar sem verður þegar örsmáar TPU kúlur eru hitaðar. Eftir að öragnirnar verða fyrir háum þrýstingi og hita byrja þær að stækka, og verða að litlum baunum sem hver um sig er með lítið loftgat í kjarna sínum. Afurðin er frauð sem hægt er að móta í fullkomið form með því að nota innspýtingu, mótunartól og gufuferli.

  • ESD vörn tryggir að stöðurafmagn sé afhlaðið. Skórnir eru með viðnámsþol á milli 0,1 Mohm og 100 MOhm samkvæmt ISO IEC 61340.

  • Leather Working Group eru alþjóðleg óhagnaðardrifin aðildarsamtök og eru ábyrg fyrir stærstu sjálfbærniáætlun leðurs í heiminum. Markmið LWG er að bæta umhverfisáhrif leðuriðnaðarins með því að meta og votta leðurframleiðendur.

  • GORE-TEX® er þunn, götuð himna. Holur himnunar eru 20.000 sinnum minni en vatnsdropar en 700 sinnum stærri en vatnssameindir. Þetta gerir það að verkum að vatnsgufa getur ferðast í gegn um himnuna en ekki vatnsdropar. GORE-TEX® er 100% vatnshelt og gerir skónum kleift að anda vel á meðan.

  • OrthoLite Hybrid Innlegg

Solid Gear Vapor 3 GTX High

Lýsing

Þriðja kynslóð Vapor með mörgum hágæða efnum og íhlutum, nú í boði sem hár kuldaskór. Yfirborðið er samsett af LWG leðri og textílefni. Klassísk uppsetning BOA® Fit kerfisins gerir kleift að stilla skóinn svo hann passi nákvæmlega við fætur. GORE-TEX® vetrarfóðring og himna einangrar gegn kulda og kemur í veg fyrir að vatn komist inn í skóinn. ETPU miðsóli sem skilar orku til baka og dempar vel, endist í lengri tíma og helst mjúkur við kaldara hitastig. Tvöfaldir TPU teinar eru samtvinnaðir í miðsólann til að viðhalda einstökum stöðugleika og snúningsstífni, og gefa góðan stuðning við ökkla. Nýþróaði Traction lug gúmmísólinn frá Vibram® veitir frábært grip við vetraraðstæður og kaldara hitastig. Innlegg frá OrthoLite®, sérstaklega hannað fyrir Solid Gear, hefur framúrskarandi endurkast og er aðallega framleitt úr endurunnum efnum. Öryggistá úr glertrefjum og mjúk naglavörn. ESD virkni samkvæmt EN IEC 61340-4-3:2018.

Snið: Vítt

Stærðir: 36-48

Frekari upplýsingar
Þyngd 1,7000 kg
stærð

Skóstærð 36, Skóstærð 37, Skóstærð 38, Skóstærð 39, Skóstærð 40, Skóstærð 41, Skóstærð 42, Skóstærð 43, Skóstærð 44, Skóstærð 45, Skóstærð 46, Skóstærð 47, Skóstærð 48

kyn

UNISEX