NOVA 4K C+R Kastari

SC-03.5441
NOVA

43.400 kr.

Endurhlaðanlegur LED kastari með rafhlöðu og snúru sem veitir 4.000 lúmen.

4 á lager

Snickers stærðartafla

Snickers stærðartafla

NOVA 4K C+R Kastari

Lýsing

Einstakur kastari með tvíþættu rafmagnskerfi sem veitir allt að 4.000 lúmen

NOVA 4K C+R er fjölhæfur LED kastari sem hægt er að keyra bæði á rafhlöðu og með snúru (tvíþætt rafmagnskerfi) til að veita þér sem mestan sveigjanleika og endalausa möguleika á hvaða vinnusvæði sem er.

Kastarinn hefur verið uppfærður úr 3.000 í 4.000 lúmen og veitir mikla en einstaklega jafna lýsingu. Þar að auki gerir innbyggður dimmir þér kleift að stilla birtustigið á 5 mismunandi þrep.

Hægt er að sjá stöðu rafhlöðu og núverandi rafhlöðuendingu aftan á ljósinu.

Sveigjanlegur LED kastari með endalausa möguleika

Frumlegt tvíþætt rafmagnskerfi gerir kleift að nota vinnuljósið með 5 m gúmmísnúru eða án snúru, til að hámarka sveigjanleika á vinnustað. Það tekur aðeins sekúndu að tengja rafmagnssnúruna – eða taka hana úr þegar þurfa þykir.

Þar sem NOVA 4K C+R er einstaklega sterkbyggt og með IP67 ryk- og vatnsþéttni þolir það krefjandi aðstæður, og má því nota það inni jafnt sem úti við hverskyns veðuraðstæður. CRI gildið er nálægt dagsbirtu, og hýsing NOVA kastarans er framleidd úr sterku mótsteyptu áli sem stenst mikil högg og skjálfta.

NOVA 4K C+R er einnig með innbyggt handfang og stand til að festa það á SCANGRIP þrífót.

Dreifðu SCANGRIP ljósinu

SCANGRIP býður upp á aukahlut fyrir vinnuljósið sem dreifir lýsingunni. Með því eykst notagildi ljóssins enn meira með nýjum möguleikum til að aðlaga ljósið að verkefninu sem er fyrir hendi. Ljósið mýkist og dreifist á stærra svæði, og kemur í veg fyrir mikla skugga. Það er aðvelt og öruggt að festa það á SCANGRIP ljósið.

Með því að dreifa lýsingunni er hægt að lýsa upp allt vinnusvæðið og á sama tíma vera með þægilegt og afkastamikið ljós þegar verið er að sinna ýmiss konar viðgerðum, málningar- eða byggingarvinnu.

Af hverju þú ættir að veja NOVA 4K C+R
  • Öflugur LED kastari sem veitir allt að 4.000 lúmen
  • Tvíþætt rafmagnskerfi svo hægt sé að nota það bæði með rafhlöðu eða með snúru
  • Hægt að sjá stöðu rafhlöðu og núverandi rafhlöðuendingu aftan á ljósinu.
  • Stilling fyrir ljósstyrk í 5 þrepum
  • Sterkbyggð hýsing úr mótsteyptu áli
  • Ryk- og vatnsþéttni (IP67) svo hægt sé að nota ljósið í hverkyns veðuraðstæðum og vinnuumhverfum.

// Hönnun NOVA 4K C+R er einstök og er varin með einkaleyfi í Evrópu RCD No 2954123.

Vörunúmer 03.5441
EAN númer 5708997354414
Tegund Kastari
Nettó þyngd (kg) 2,30
Lengd (mm) 235,00
Breidd (mm) 88,00
Hæð (mm) 233,00
Í kassanum Ljós, hleðslutæki, notkunarleiðbeiningar
Heildarþyngd, umbúðir (kg) 2,48
Lengd, umbúðir (mm) 240,00
Breidd, umbúðir (mm) 240,00
Hæð, umbúðir (mm) 95,00
Ljósstreymi, Hámark (Lúmen) 4.000
Ljósstreymi, Lágmark (Lúmen) 400
Styrkur Lýsingar (á flöt), Hámark (Lúx@0,5m) 5.000
Styrkur Lýsingar (á flöt), Lágmark (Lúx@0,5m) 500
Styrkur Lýsingar (á flöt), Vegalengd (Metrar) 0,50
Ljósgjafi Afkastamikil COB LED
LED Afköst (lm/w) 170
CCT (Kelvin) 6.000
CRI Ra > 80
Stillanleg Lýsing 5 þrep
Aðal Geislahorn 110°
Straumveita Snúra & endurhlaðanleg rafhlaða
Tegund Rafhlöðu Li-ion
Stærð Rafhlöðu (mAh) 4.400
Spenna Rafhlöðu (V) 11,10
Hleðsluspenna DC (V) 12,60
Hleðslustraumur (A) 2,40
Inntaks hleðsluspenna (V) 100-240V AC 50/60Hz
Snúra 5m / 2×0,75 6mm2 H05RN-F
Tegund tengiklóar Tegund F (Schuko kló)
Orkunotkun (W) 29,00
Hleðslutæki Innifalið
Notkunartími með lág. lúmen (klst) 14,00
Notkunartími með hám. lúmen (klst) 1,00
Hleðslutími (klst) 2,00
Ryk- og vatnsþéttni IP67
Árekstrarvörn IK07
Rekstrarhitastig (°C) -10 °C til  +40 °C
Frekari upplýsingar
Þyngd 2,4800 kg
Merki

Merki

Scangrip

Nýlega Skoðað

21.800 kr.
64.600 kr.
8.800 kr.
6.800 kr.