Endurhlaðanlegt LED flóðljós með tvíþættu rafmagnskerfi sem veitir allt að 2.500 lúmen
VEGA LITE C+R er hluti af vörulínu sem samanstendur af þremur nýstárlegum, sterkbyggðum og léttum LED flóðljósum sem hönnuð eru fyrir fagfólk. Ljósið veitir hágæða lýsingu og hentar í ýmiss konar vinnu innan- og utandyra.
Samanborið við fyrri útgáfu hefur ljósstyrkur VEGA LITE C+R verið hækkaður úr 1.500 í 2.500 lúmen. Öflugu LED perurnar veita jafna og þægilega lýsingu sem blindar ekki og dreifist yfir stórt svæði.
Hýsing VEGA LITE C+R er framleidd úr sterkbyggðu höggþolnu plastefni sem er fullkomið fyrir vinnuumhverfi. Þar sem LED perurnar gefa ekki frá sér hita er engin eldhætta við að nota flóðljósið.
Með framúrskarandi hönnun, afköstum og endingu býður nýja útgáfa VEGA LITE C+R upp á öfluga lýsingu og mikil gæði.
Flóðljós með miklum sveigjanleika
Frumlegt tvíþætt rafmagnskerfi gerir kleift að nota vinnuljósið með 5 m gúmmísnúru eða án snúru, til að hámarka sveigjanleika á vinnustað. Það tekur aðeins sekúndu að tengja rafmagnssnúruna – eða taka hana úr þegar þurfa þykir.
VEGA LITE COMPACT er með innbyggðu handfangi og standi til að auðvelda uppstillingu á ljósinu og möguleiki að festa það beint á SCANGRIP þrífót, svo ljósið geti verið í þeirri stöðu sem hentar hverju sinni.
Af hverju þú ættir að veja VEGA LITE C+R
- Öflug og dreifð lýsing, allt að 2.500 lúmen
- Tvíþætt rafmagnskerfi svo hægt sé að nota það bæði með rafhlöðu eða með snúru
- Létt og endingargóð hönnun
- LED perurnar gefa ekki frá sér hita og því er engin eldhætta við að nota flóðljósið
// Hönnun VEGA LITE C+R er einstök og er varin með einkaleyfi í Evrópu RCD No 2954123.